Ferlið
Hvert einasta mál er einstakt og sá tími sem það tekur að vinna málin er því mjög misjafn. Þó ber að hafa í huga að almennt er fyrst hægt að meta mál þegar um ár er liðið frá því að tjónið varð.
Það er góð regla að ráðfæra sig við starfsmenn Fulltingis sem fyrst. Bæði kemur það í veg fyrir að bótaréttur glatist, auk þess sem mikilvægt er að koma málunum í réttan farvegi eins fljótt og auðið er.
Starfsmenn Fulltingis sjá um alla gagnaöflun og samskipti við tryggingafélögin. Þeir afla einnig matsgerðar og ganga frá bótagreiðslum við tryggingafélögin. Áður en gengið er til uppgjörs við tryggingafélagið er ávallt farið yfir málið með tjónþola.
Fyrning
Það er góð regla að ráðfæra sig strax við lögmann í kjölfar slyss. Hins vegar má í ýmsum tilvikum nýta með góðum árangri bótarétt sem hefur legið ónýttur.
Fólk uppgötvar oft ekki fyrr en seint og síðar meir að það á rétt á bótum. Almennt gildir sú regla að bótaréttur fyrnist á 10 árum eftir að slys á sér stað. Þó er sérregla í umferðarlögum sem segir að tjón geti fyrnst á 4 árum frá því að sá sem slasast gat fyrst sett fram kröfu sína.
Mikilvægt er að athuga að samkvæmt nýjum lögum þarf tjónþoli að tilkynna slys innan árs frá því að hann mátti gera sér grein fyrir afleiðingum slyssins, jafnvel þó bætur séu sóttar seinna úr tryggingunni. Hvert mál þarf að skoða sérstaklega hvað þetta atriði varðar og hvetjum við því tjónþola að senda tilkynningu sem allra fyrst eftir slys.