Slysamál - hvað fæst bætt?

Umferðarslys, slys á sjómönnum og ábyrgðartjón

?Bætur vegna varanlegs taps á starfsgetu (fjárhagsleg örorka)

Tjónþoli getur orðið fyrir varanlegri skerðingu á getu til að afla vinnutekna til framtíðar eftir slys. Tekjuskerðingin getur t.d. komið fram í því að tjónþoli þarf að breyta um starfsvettvang og lækkar í kjölfarið í launum. Einnig getur þetta komið fram í skertri getu tjónþola til að taka að sér álagsvinnu eða mikla yfirvinnu. Að lokum getur slys haft það í för með sér að tjónþoli þarf fyrr að minnka við sig vinnu á lífsleiðinni.
Við mat á varanlegri örorku er horft til þess hvaða tjóni tiltekinn áverki veldur tilteknum einstaklingi. Við mat á þessu er m.a. horft til aldurs tjónþola, menntunar, starfsreynslu, búsetu og fleiri einstaklingsbundinna forsendna. Þetta er því þveröfugt við mat á miska eða læknisfræðilegri örorku.

?Miskabætur

Bætur fyrir miska fela í sér greiðslu á ófjárhagslegu tjóni fyrir tjónþola. Við matið er ekki tekið tillit til starfs, sérstakra hæfileika eða þjóðfélagsstöðu. Þetta þýðir að allir eru metnir til sömu örorku fyrir sams konar áverka. Miðað er við tilteknar örorkutöflur þar sem er að finna viðmið við mat á örorkunni. Þannig er t.d. missir litlafingurs um 5-7% örorka hvort sem um er að ræða píanóleikara, lögfræðing eða iðnaðarmann.

?Þjáningabætur

Tjónþoli á rétt á þjáningabótum fyrir þann tíma sem hann er veikur eftir slys (oftast er miðað við óvinnufærni), fjárhæðirnar taka mið af því hvort tjónþoli er rúmliggjandi (á spítala) eða ekki.

?Bætur vegna tímabundins tekjutaps

Tjónþoli getur átt rétt á greiðslum fyrir þann tíma sem hann er frá vinnu og fær ekki bættan frá sínum vinnuveitanda. Bæturnar miðast þá við þann tíma sem launagreiðslur falla niður hjá vinnuveitanda og þar til tjónþoli hefur aftur störf, eða ef ekki er að vænta frekari bata. Huga þarf einnig að bótarétti hjá Sjúktratryggingum Íslands á þessum tíma.
Eftir greiðslur frá tryggingafélaginu getur tjónþoli átt rétt á greiðslum frá stéttarfélagi eða lífeyrissjóði.
Ef um frítímaslys eða einfalt vinnuslys er að ræða þá getur tjónþoli átt rétt á dagpeningum.

?Sjúkrakostnaður og annar kostnaður

Hér undir falla m.a. útgjöld vegna læknismeðferðar, dvalar á sjúkrahúsi, sjúkraþjálfunar og sjúkraflutninga. Einnig getur kostnaður vegna t.d. leigubifreiða og stoðtækja tilheyrt þessum flokki. Mikilvægt er að halda til haga frumritum af öllum reikningum og koma þeim til okkar, en við sjáum um að krefja tryggingarfélagið um útlagðan kostnað.

Einföld vinnuslys og frítímaslys

?Læknisfræðileg örorka

Sá sem lendir í frítímaslysi eða einföldu vinnuslysi getur átt rétt á bótum vegna læknisfræðilegrar örorku, þ.e. ef slysið hefur í för með sér varanlegar afleiðingar. Við ákvörðun læknisfræðilegrar örorku ber ekki að taka tillit til starfs, sérstakra hæfileika né þjóðfélagsstöðu. Þetta þýðir að allir eru metnir til sömu örorku fyrir sams konar áverka, sbr. miskabætur. 

Fyrsta viðtalið er frítt

 

Hafðu samband við okkur og við ráðleggjum þér.