Vélhjólaslys

Þegar einstaklingur slasast í vélhjólaslysi, hvort sem um ökumann eða farþega er að ræða, getur hann átt rétt á bótum, annaðhvort úr slysatryggingu ökumanns- og eiganda eða ábyrgðartryggingu.

Það skiptir ekki máli hvort hinn slasaði var í rétti eða órétti. Það er líka sama hvort slysið átti sér stað vegna árekstrar eða vegna þess að viðkomandi datt af vélhjólinu eða missti stjórn á því vegna einhverra utanaðkomandi þátta.

Mikil vanþekking og misskilningur er um bótarétt í vélhjólaslysum, en bótarétturinn er sá sami og gildir varðandi einstaklinga sem lenda í umferðarslysi af völdum bifreiða. Mikilvægt er að sá sem fyrir slysinu varð, ráðfæri sig við lögmann um rétt sinn. Fyrsta viðtal er alltaf ókeypis hjá okkur.

Fyrsta viðtalið er frítt

 

Hafðu samband við okkur og við ráðleggjum þér.