Slysatrygging launþega er skyldutrygging sem tryggð er í kjarasamningum. Þessi trygging felur í sér bótarétt vegna vinnuslysa, hvort sem slysið verður á sjó eða landi. Þá á hinn slasaði einnig rétt á bótum frá Sjúkratryggingum Íslands. Rétturinn til bóta úr slysatryggingu launþega og hjá Sjúkratryggingum Íslands er óháður því að einhver hafi valdið slysinu af gáleysi.
Verði slysið rakið til atvika sem vinnuveitandi ber ábyrgð á, t.d. vegna vanbúnaðar eða mistaka starfsmanna hans, getur verið um skaðabætur að ræða úr ábyrgðartryggingu vinnuveitanda.
Ef slysið er einungis bótaskylt úr slysatryggingu launþega og hjá Sjúkratryggingum Íslands, á tjónþoli m.a. rétt á dagpeningum og bótum fyrir læknisfræðilega örorku. Ef slys er bótaskylt úr ábyrgðartryggingu á tjónþoli m.a. rétt á að fá útlagðan kostnað fyrst eftir slysið (lækniskostnað, sjúkraþjálfun og fleira), tekjutap, þjáningabætur, miskabætur, bætur fyrir varanlega örorku, stærstan hluta lögfræðikostnaðar og annað fjártjón.